
Íslenskar konur eru í gríðarlegu tilfinningalegu uppnámi vegna misvísandi frétta af opnun H&M verslunar hér á landi.
Víða mátti heyra fagnaðaróp snemma í morgun þegar fréttir bárust af opnun H&M við Laugaveg. Skömmu síðar var fréttin dregin til baka og í kjölfarið fór ógurleg örvæntingar- og grátkveinabylgja um bæi og sveitir landsins.
Eitthvað var um að karlmenn fengju taugaáfall vegna frétta um opnunina í morgun, en þeir hafa flestir jafnað sig að fullu eftir að þær voru dregnar til baka.

Framkvæmdastjóri á sextugsaldri ætlar að skrópa í vinnu í dag og fara þess í stað út að leika í snjónum.
„Veistu, ég nenni bara ekki að vera spólandi út um allan bæ á jeppanum, blautur í lappirnar og pirraður – þegar ég get farið hérna út í garð, búið til snjókalla og engla, hoppað fram af bílskúrnum, étið snjó og brutt grýlukerti – og dúndrað snjóboltum í rúðuna hjá pirruðu kellingunni hérna á móti.“
Hefur hann þegar skorað á fjölmarga millistjórnendur, framkvæmdastjóra og stjórnarmenn að koma og leika í dag, verða „almennilega rassblautir“ og fá svo sjóðheitt kakó hjá mömmu á eftir.

Fornleifafræðingar hafa fundið minjar sem benda til þess að klámvæðingin svokallaða hafi hafist mun fyrr en áður hefur verið talið – jafnvel við landnám.
Að sögn Dr. Harðar P. Einarz, fornleifasérfræðings, hafa m.a. fundist merki um mikla sleipiefnanotkun í grennd við landnámsbæ Ingólfs Arnarsonar ásamt vísbendingum um gríðarlega latex-litklæðaframleiðslu. Auk þess hafa fundist allnokkrir viðhengilimir, heillegar pungsköfur og klámfengnar rúnaristur á svæðinu.
Rennir fundurinn stoðum undir kenningu Dr. Harðar um að Íslendingar séu komnir af norskum swingklúbbi.

Holdgervingur þorrans, ofurhetjan Þorró, er kominn til byggða. Honum sást bregða fyrir á ellefu þorrablótum víðsvegar um landið um síðustu helgi.
Þessi hálfbróðir jólasveinanna, samfeðra, sonur Leppalúða og leikkonunnar þokkafullu, Sophiu Loren, er af mörgum talinn hinn eini sanni boðberi þorrans.
Ekki eru allir sáttir við komu Þórrós, enda fylgir honum stækur óþefur, mikið fyllerí og óhemju magn af mysu - en hann er þekktur fyrir að súrsa allt sem hann kemst í tæri við; matvæli, fatnað, raftæki og hvaðeina. Þá er vægast sagt umdeildur sá siður hans að lauma súru hvalspiki í skó barna og margir sem hafa látið glepjast af vel kæstum vestfirskum glerhákarli í umbúðum utan af makkintossi, sem hann dregur úr pússi sínu og býður grunlausum þorrablótsgestum.

Bjarni Benediktsson, þingmaður, hefur sent bréf til HSÍ með ósk um að landsliðið dragi sig í hlé á EM í handbolta.
Hefur hann miklar og þungar áhyggjur af dómgæslunni í næstu leikjum og er þess fullviss að hún verði Íslendingum í óhag.
Því leggur hann til að liðið dragi sig þegar í stað út úr keppninni og einbeiti sér að æfingaleikjum hér heima, eða snúi sér alfarið að öðrum íþróttum.

Samkvæmt heimildum Baggalúts er Geir Haarde, fyrrum formaður, búinn að 'adda' Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, sem 'vini' á samskiptasíðunni Facebook.
Ekki er ljóst hvor þeirra sendi vinabeiðnina, en Ögmundur hefur þó verið sýnu aktífari á síðunni en Geir – og m.a. ítrekað 'pókað' þingmenn Sjálfstæðisflokks, einkum formann hans.
Eftir þessar breytingar á Geir 12 vini og Ögmundur 3.

Gjöf Grænlendinga til Margrétar Þórhildar Danadrottingar í tilefni af 40 ára ríkisafmæli hennar þykir sérlega glæsileg og vekur mikla athygli.
Gjöfin er einstaklega tignarlegur sjálfdauður selur sem stoppaður var sérstaklega upp fyrir þetta tilefni.
Þykir þessi virðingarvottur jafnvel taka fram gjöfinni frá 30 ára ríkisafmælinu þegar drottningin fékk flösku af grænlenskum landa og karton af sérvöfðum sígarettum.

Reykjavíkurborg áskotnuðust fyrir tilviljun miklar birgðir af umfram-iðnaðarsalti sem féll til vegna „einhvers uppsafnaðs áratuga hálfvitagangs“ hjá þekktu stórfyrirtæki, sem ómögulega vill láta nafn síns getið.
Munu borgarstarfsmenn dreifa saltinu á restina af klakanum í borginni á næstu dögum, ef veður leyfir.
Er fólk beðið að sýna áframhaldandi þolinmæði, því í mörgum tilvikum er saltið fast í þekktum íslenskum matvörum og getur því tekið drjúga stund að fara úr t.d. frosnum kjúklingalærum, pítsasneiðum eða brauðsnúðum – yfir í sjálfan ísinn.

Hóffífill (tussilago farfara) er samkvæmt nýrri könnun líklegri til að verða forseti Íslands en allir þeir sem hingað til hafa verið nefndir sem líklegir frambjóðendur.
Baggalútur lét gera könnunina fyrr í vikunni. Úrtakið var 7.000 manns sem svöruðu eftirfarandi spurningu: „Hver telur þú að líklegt sé að verði næsti forseti Íslands?“
6914 nefndu hóffífil, 4 Davíð Oddsson og 2 Labba í Mánum. Aðrir skildu ekki spurninguna eða neituðu að svara.

Félagar í Kiwanisklúbbnum Blesa hafa setið að sumbli frá því snemma á Þorláksmessu með það að markmiði að verða „gersamlega blek-mökk-pödduhellaðir,“ eins og þeir orða það.
„Já. Við ákváðum það í stjórninni að fá okkur aðeins í tána og svona í tilefni af 7 ára afmæli klúbbsins og hittumst í skötuveislu. Þegar leið á daginn settum við okkur markmið um að verða gersamlega blek-mökk-pödduhellaðir. Síðan þá erum við búnir að drekka 200 kassa af bjór, 11 ákavítisflöskur, 23 vodkaflöskur, 5 pela af koníaki og 9 brúsa af landa. Við erum helvíti slompaðir en ekki næstum því orðnir gersamlega blek-mökk-pödduhellaðir eins og markmiðið er. Það er verst að maður drepst alltaf þegar maður er rétt orðinn rallhálfur. Betur má ef duga skal,“ segir Herjólfur Herjólfsson ritari klúbbsins.

Svo virðist sem hugmyndaflug þjóðarinnar sé ansi takmarkað þegar kemur að því að velja þjóðlega rétti í þorrabakkann. Hér eru nokkrir ljúffengir rammíslenskir réttir til að lífga upp á þorrablótin:
1. Súrsætir refspungar.
2. Lóulifrarpylsa.
3. Sviðin hafarnahöfuð.
4. Djúpsteiktar hagamýs.
5. Krossköngulóapaté.
6. Kæst kúajúgur.
7. Fjárhundablóðmör.
8. Blönduð hákarla- og hrútaberjasulta.
9. Súr köttur.
10. Brennivín í lýsi.
Bon appetit!
Baggalútur er eini skemmtistaður landsins sem leyfir reykingar, apahald og nektardans. Hann er og eini vefurinn sem býður upp á vefslóðir á íslensku í öllum föllum eintölu; baggalútur.is, baggalút.is, baggalúti.is og baggalúts.is.
Vinsamlegast hafið samband við ritstjorn@baggalutur.is ef þið viljið kaupa hlutabréf, biðja um óskalög – ellegar tilkynna um lífsmark á öðrum lífstjörnum.